Vallholt 23, 690 Vopnafjörður
25.000.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
5 herb.
162 m2
25.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1987
Brunabótamat
75.200.000
Fasteignamat
29.100.000

INNI fasteignasala s. 580 7905 -  [email protected]
 

INNI FASTEIGNASALA sími 580 7905 hefur fengið í einkasölu Vallholt 23, Vopnafirði.
Einbýlishús á einni hæð ásamt bílskúr. Eignin skiptist í eldhús, baðherbergi, þvottahús, forstofu, hol, fjögur svefnherbergi, stofu og bílskúr.
Komið var inn í húsið í gegnum inngang við bílskúr. Eldhús er með plastparket á gólfi, ágætri innréttingu með ofn í vinnuhæð. Borðkrókur. Þar til hægri er þvottahús, gólf málað, niðurfall, þvottafél í vinnuhæð. Gengið áfram inn í hol sem er parketlagt. Til vinstri er forstofa (aðalinngangur) með fallegum flísum á gólfi. Beint gegnt forstofu er svefnherbergi/gestaherbergi, plastparket, gluggi til vesturs. Þar við hliðina er baðherbergi, plastparket á gólfi, baðkar, sturtuklefi, rennihurð ekki með læsingum, spegill í innréttingu, vaskur í innréttingu. Baðherbergið ber með sér að endurbótum sé ekki að fullu lokið.
Næst til vinstri er herbergi með glugga út á götu, þaðan er gengt upp á geymsluloft, sem nýtist vel (parketlögð að hluta). Áfram inneftir (suður) er annað svefnherbergi á hægri hönd, með plastparketi og þar við hliðina er hjónaherbergi, einnig með plastparketi og þreföldum fataskáp. Stofa er í suðvesturhorni hússins, með eldstæði/kamínu sem er tengd út. 
Hús og bílskúr eru samtengd með lítilli forstofubyggingu sem er einnig með hurðir inn í garð og út að bílastæði. Bílskúr er með rafmagnshurð, steypt gólf, vask, rafmagn, hita, niðurfalli og hillum. Úr holinu/forstofunni er gengt út á stóran timburpall (líklega um 80 fm) með háum skjólveggjum, þar er heitur pottur, garðskúr.

Kominn er tími á að mála allt tréverk hússins að utan. 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.