INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
Mikið endurnýjuð fjögurra herbergja íbúð í parhúsi á tveimur hæðum.
Baðherbergi var endurnýjað árið 2023, forstofa og gestasalerni árið 2019, gólfefni á neðri hæð mikið endurnýjuð 2019 og eldhús allt endurnýjað 2017. Útgengt úr stofu á fallega verönd (klædd Composite) með skjólveggjum. Á verönd er heitur pottur, sauna og útisturta.Flísar eru í forstofu og á gestasalerni þar inn af. Aðstaða fyrir þvottavél er á gestasalerni. Flísar eru einnig í holi og þar er stigi á milli hæða. Falleg innrétting er í eldhúsi og flísar á gólfi. Hiti er í gólfi í forstofu, gestasalerni, holi og eldhúsi. Í stofu er parket á gólfi og úr stofu er útgengt á verönd í garði. Undir stiga í holi er búið að útbúa lokaða geymslu.
Á efri hæð er flísalagt baðherbergi og þar er hiti í gólfi. Á baðherbergi er sturta, fín innrétting og handklæðaofn. Á efri hæð eru þrjú svefnherbergi, öll með parket á gólfi. Eitt herbergið er lítið en getur vel nýst sem barnaherbergi fyrstu ár barns. Á háalofti er köld geymsla sem er vel aðgengileg í gegnum lúgu með fellistiga.
Aðkoma að húsi er hellulögð og í garði er nokkuð stór geymsluskúr.