INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
Góð tveggja herbergja íbúð á 7.hæð í fjölbýlishúsi með lyftu. Gott útsýni.Forstofa er opin með parket á gólfi. Í forstofu er tvöfaldur fataskápur. Stofa og eldhús eru í nokkuð opnu rými með parket á gólfi. Útgengt er á rúmgóðar suður-svalir. Baðherbergi er flísalagt, þar er baðkar með sturtu í. Svefnherbergi er rúmgott með parket á gólfi og fjórföldum fataskáp. Í íbúðinni er flísalagt þvottahús.
Íbúðinni tilheyrir góð geymsla í kjallara ásamt hlutdeild í hjóla- og vagnageymslu á jarðhæð.