INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
Lítið einbýlishús á fallegum stað við sjóinn og með útsýni yfir fjörðinn og fallega fjallasýn. Þak á húsinu hefur verið endurnýjað.Stofa er ágætlega rúmgóð og úr stofu er magnað útsýni. Eldhús er orðið nokkuð ,,þreytt" og sama má segja um baðherbergi. Tvö svefnherbergi eru í húsinu í dag en líklega er einfalt að hólfa af þriðja herbergið ef þess þarf.
Húsið þarfnast orðið viðhalds og endurbóta og vilja eigendur því skora á tilvonandi kaupendur að skoða húsið vel.