INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
Mjög fín fjögurra herbergja íbúð á 2.hæð í fjölbýlishúsi við Múlaveg 41 á Seyðisfirði.
Allt parket í íbúðinni er nýlegt og íbúðin var öll máluð á sama tíma. Forstofa er opin með parket á gólfi. Parket er einnig í stofu sem er rúmgóð með útgengt á svalir. Í eldhúsi er borðkrókur og fín innrétting. Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni, öll með parket á gólfi og fataskápar eru í öllum herbergjum. Dúkur er á baðherbergi, þar er baðkar með sturtu í. Þvottahús með máluðu gólfi er inn af eldhúsi.
Góð geymsla er í íbúðinni.