INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
Hótel Eyvindará, Egilsstöðum.
Fallegt og vel útbúið sveitahótel í fullum rekstri á frábærum stað, innan við 2 km frá þéttbýlinu á Egilsstöðum.
Fjölbreytt gisting, vel útbúið eldhús, rúmgóður matsalur, mjög gott þvottahús, falleg móttaka og bar og stór timburverönd með heitum pottum fyrir gesti. Gistirými á Hótel Eyvindará er fyrir a.m.k. 66 manns.
- Á hótelinu eru 16 herbergi, öll tveggja manna og með sér baðherbergi. Herbergin eru öll með parket á gólfi og baðherbergi eru flísalögð í hólf og gólf.
- 10 herbergja gistihús á einni hæð stendur við hótelið. Öll herbergi þar eru tveggja manna og sér baðherbergi fylgir öllum herbergjum.
- Í fallegum rjóðrum á skógi vöxnu landinu rétt við hótelið standa 7 lítil gistihús og eru þau öll með sér baðherbergi. Eldunaraðstaða er í hluta húsanna.
Á hótelinu er vel útbúið eldhús með stórum kæli. Matsalur er bjartur og fallegur með góðu útsýni. Sæti fyrir 50 manns er í matsal. Einnig er á hótelinu afar vel útbúið þvottahús.