INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
Vel skipulögð íbúð á annarri hæð með fimm svefnherbergjum, rúmgóða stofa/borðstofa og tvö baðherbergi. Stofa og borðstofa eru í opnu rými með dúk á gólfi og útgengt á svalir. Í eldhúsi eru vínilflísar á gólfi, þar er eldri innrétting og borðkrókur. Inn af eldhúsi er þvottahús. Fimm svefnherbergi eru í íbúðinni, fjögur þeirra eru með dúk á gólfi en parket er á einu herbergi. Í íbúðinni eru tvö baðherbergi og er sturta á þeim báðum.
Eignin hefur verið nýtt sem gistiheimili undanfarið og er skráð sem slík hjá Þjóðskrá Íslands og því mögulegt að halda áfram með slíka starfsemi eða breyta notkun í íbúð.