INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
Skjöldólfsstaðir eru líklega um 6700 ha jörð á Jökuldal og liggur jörðin m.a. að laxveiðiánni Jöklu og til sölu er 66,66% eignarhlutur í jörðinni. Jörðin býður einnig upp á mikla möguleika er varða skotveiði, bæði gæsa- og rjúpnaveiði. Árlega er greiddur um 150-200 þús. króna hreindýraarður. Íbúðarhús er á tveimur hæðum og í ágætu ástandi. Á neðri hæð er eru tvær samliggjandi stofur, eldhús, baðherbergi, þvottahús og eitt svefnherbergi. Á neðri hæð er einnig sameiginleg forstofa fyrir báðar hæðir. Á efri hæð eru fimm svefnherbergi og baðherbergi.
Mjög flott fjárhús með áburðarkjallara eru á jörðinni. Fjárhús rúma 700-800 fjár.
Heimarafstöð er á jörðinni og sér fyrir öllu rafmagni auk þess sem rafmagn er selt til sveitarfélagsins. Tekjur af sölu rafmagns hafa verið um ein milljón á ári.
Fleiri byggingar eru á jörðinni s.s. gömul fjárhús, hlaða, beitarhús og önnur hlaða við beitarhús. Vélageymsla er einnig á jörðinni.