INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
INNI fasteignasala s. 580 7905 kynnir í einkasölu íbúð á Vopnafirði:Fimm herbergja íbúð á efstu hæð í litlu fjölbýli á Vopnafirði.
Komið inn í lítið hol með tvöföldum fataskáp. Strax á vinstri hönd er lítið barnaherbergi. Á hægri hönd er borðstofa og þaðan er gengt út á aðrar af tveimur svölum íbúðarinnar.
Hjónaherbergi er með fjórföldum fataskáp en auk þess eru tvö önnur rúmgóð svefnherbergi í íbúðinni.
Í miðri íbúðinni eru tvö herbergi, annars vegar salerni og vaskur og hins vegar baðkar og vaskur. Innst í íbúðinni til hægri er stofa, gengt út á svalir og á milli stofu og borðstofu er búrherbergi og eldhús sem hægt er að ganga í gegn um.
Að utan lítur húsið nokkuð vel út. Stigagangur teppalagður. Dyr bæði út að Kolbeinsgötu og niður að Skálanesgötu, en þaðan er ekið inn á bílastæði fjölbýlishússins.